Um okkur
Kratos lögmannsstofa er í eigu tveggja kvenna, þeirra Önnu Einarsdóttur og Kolku B. Hjaltadóttur.
Anna Einarsdóttir, lögmaður, sinnir málflutningi og almennri lögfræðiþjónustu fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Hún er jafnframt lögmaður Afstöðu, félags fanga, og eru sakamál því stór hluti af hennar starfi. Anna skrifaði meistararitgerð á sviði sönnunar í sakamálum.
Kolka B. Hjaltadóttir, lögfræðingur og fulltrúi, sinnir allri almennri lögfræðiþjónustu. Hún annast jafnframt viðamikla lögfræðivinnu og undirbúning í tengslum við dómsmál. Hún skrifaði meistararitgerð á sviði miskabóta.
Margir þekkja Önnu af samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram. Sem fyrsti og líklegast eini lögmaðurinn á Íslandi sem nýtir miðlana til markvissrar lögfræðifræðslu hefur hún lagt sig fram um að skýra réttarkerfið á mannamáli. Í hlaðvarpinu True Crime Ísland gera þær slíkt hið sama, þar sem fjallað er um nýleg íslensk sakamál og dómar útskýrðir á aðgengilegan hátt.
