Verðskrá

Lögmenn Kratos vinna á tímagjaldi nema samið sé sérstaklega um annað. Innheimt er samkvæmt gildandi tímagjaldi þegar reikningur er gerður.

Um vinnu gegn tímagjaldi gildir eftirfarandi:

a. Lögmenn
37.500 kr./klst.
b. Löglærðir fulltrúar
32.500 kr./klst.

Virðisaukaskattur er lagður á þóknun eins og hann er ákveðinn með lögum hverju sinni.

Lágmarkseining í tímavinnu er 15 mínútur.

Kratos er ekki bundið af ákvörðun dóms um kostnað og þóknun gagnvart viðskiptamanni sínum.

Útlagður kostnaður og ferðir

Viðskiptamanni ber að greiða allan útlagðan kostnað sérstaklega, svo sem kostnað við matsgerðir, ágripsgerðir, dómsmálagjöld, keyptar mætingar, ferðir og fleira. Kratos áskilur sér rétt til að leggja umsýsluþóknun ofan á útlagðan kostnað, allt að 15%.

Fyrir styttri ferðir innan höfuðborgarsvæðisins greiðir viðskiptamaður 6.000 kr. en fyrir lengri ferðir og akstur utan höfuðborgarsvæðis greiðir hann 141 kr. fyrir hvern kílómetra. Þá greiðir viðskiptamaður annan útlagðan kostnað, svo sem fæði og gistingu, eftir reikningum, að viðbættu 15% álagi.

Innheimta og eignaviðskipti

Til viðbótar við framangreint tekur Kratos 10% af öllum innheimtum kröfum hvenær sem fjármunir falla til, hvort sem er við dóm, úrskurð eða samkvæmt samkomulagi. Kratos greiðir innheimtar fjárhæðir út án áfallinna vaxta en vextir teljast til vörslugjalds.

Fyrir umsýslu eða aðstoð við kaup eða sölu fasteigna, fyrirtækja, eða annarra eigna greiðir viðskiptamaður tímagjald en þó aldrei minna en sem nemur 3% af söluandvirði.

Greiðslur og skilmálar

Viðskiptamaður er ábyrgur fyrir greiðslu þóknunar og kostnaðar hvort sem það fæst greitt úr hendi gagnaðila eða ekki.

Viðskiptamaður á rétt á að fá yfirlit úr tímaskrá lögmanns sem liggur að baki reikningi.

Kratos áskilur sér rétt til þess að krefjast greiðslu áður en verk byrjar sem og reglulega á meðan mál er rekið.

Kratos áskilur sér rétt til að endurskoða gjaldskrá þessa, að minnsta kosti einu sinni á ári, og ber viðskiptamanni að fylgjast með breytingum.