Öll skjöl fyrir áhrifavalda

Öll skjöl fyrir áhrifavalda

29.000 kr.

Með nýjum markaðssetningarlögum, sem tóku gildi í maí 2026, bera áhrifavaldar sjálfir ábyrgð á merkingu auglýsinga — að viðlögðum háum sektum. Í samstarfi við fyrirtæki er auk þess oft óljóst hver á efnið og hvernig fer með skatt af vörum og greiðslum.

Pakkinn er fyrir þá sem vilja hafa þetta á hreinu áður en þeir skrifa undir og nýtist jafnt þeim sem eru að gera fyrsta samninginn sem og þeim sem hafa samið oft áður.

Hvað er í pakkanum?

Handbók
Farið er yfir reglurnar á mannamáli. Þar kemur fram hvenær færsla telst auglýsing og hvernig á að merkja hana, hver á efnið og hvað gildir um börn og vörur sem ekki má auglýsa. Einnig er fjallað um skatta og virðisaukaskatt, samninga við umboðsstofur og affiliate-samstarf.
Kostunarsamningur
Sniðmát sem þú fyllir út og getur notað aftur. Í honum er gengið frá því hvað á að birta og hvenær, greiðslu, notkunarrétti, einkarétti og merkingum. Þar kemur líka fram hvað gerist ef annar aðilinn stendur ekki við sitt.
Gátlisti
Til að fara yfir samninga sem þú færð senda frá fyrirtækjum eða umboðsstofum.
Yfirlit yfir mál
Mál þar sem Neytendastofa og dómstólar hafa fjallað um duldar auglýsingar.

Skjölin eru í PDF. Efnið er samið af Önnu Einarsdóttur hdl. og miðast við lögin eins og þau voru í september 2026. Pakkinn hefur að geyma almennar upplýsingar og sniðmát og kemur ekki í stað lögfræðiráðgjafar í einstöku máli.

Skjölin koma á netfangið þitt eftir pöntun — PDF.

Sjá einnig