
Öll skjöl fyrir áhrifavalda
Handbók og útskýringar á nýjum lögum sem gilda um áhrifavalda, tilbúnir samningar sem þú getur notað, gátlisti þegar þú semur um samstarf o.fl.

24.990 kr.
Ræddu við okkur á Teams, hvar sem þú ert á landinu. Þú færð ráðgjöf á fundinum og stutt lögfræðilegt minnisblað í tölvupósti að honum loknum.
Heildarverð fyrir fund og minnisblað: 24.990 kr., með VSK inniföldum.
Við bjóðum upp á hnitmiðaða ráðgjöf sem samanstendur af 30 mínútna fjarfundi á Teams og stuttu lögfræðilegu minnisblaði í tölvupósti. Þetta er þinn tími og þú ræður algjörlega umræðuefninu. Viðskiptavinir geta nýtt þennan fund að eigin vild til að bera undir okkur hvers kyns mál, fá faglegt mat á réttarstöðu sinni eða ræða hvort skynsamlegt sé að leita réttar síns og halda lengra með tiltekið mál.
Á fundinum svörum við spurningum þínum, ræðum valkosti og veitum lögfræðilegt álit eins og frekast er unnt á þeim tíma sem til ráðstöfunar er. Að fundi loknum vinnum við stutt og hagnýtt minnisblað þar sem við drögum saman kjarna málsins og leggjum mat á fýsileg næstu skref. Þetta skjal er sent beint í tölvupósti og þjónar sem skýr staðfesting á þeirri ráðgjöf sem veitt var á fundinum.
Ráðgjöfin inniheldur
Vinsamlegast athugið að þjónustan er afmörkuð við þennan hálftíma fund og minnisblaðið sem honum fylgir. Ráðgjöfin og samantektin byggja þannig eingöngu á þeim upplýsingum sem reifaðar eru á fundinum sjálfum og fela ekki í sér sjálfstæða gagnaöflun eða frekari lögfræðivinnu af okkar hálfu. Ef ljóst þykir að málið sé yfirgripsmikið eða kalli á frekari aðgerðir er gerður um það sjálfstæður samningur.

Handbók og útskýringar á nýjum lögum sem gilda um áhrifavalda, tilbúnir samningar sem þú getur notað, gátlisti þegar þú semur um samstarf o.fl.

60 mínútna fjarfundur á Teams og stutt lögfræðilegt minnisblað í tölvupósti.

Nýr þáttur alla mánudaga. Hlaðvarpið er einungis í áskrift.


Sannsöguleg gömul íslensk sakamál í ellefu þáttum. Engin áskrift.

